Ferlið okkar

01 — Samtal

Fyrsta skrefið er alltaf að hafa samband hvort sem þú heimsækir okkur í sýningasalinn eða sendir okkur tölvupóst. Við veitum persónulega ráðgjöf, förum yfir valmöguleika og leiðum þig áfram.

02 — Hönnun & Teikningar

Þar sem við sérsmíðum allar innréttingar er nauðsynlegt að hafa innréttingateikningar. Þú getur sent okkur teikningar frá þínum arkitekt eða hönnuði og fengið tilboð í verkið, eða unnið með okkar innanhússarkitektum að hönnun rýmisins.

Til að fá tilboð hjá okkur í hönnun og teiknivinnu, vinsamlegast sendu grunnmynd af af húsinu þínu og taktu fram inn í hvaða rými / herbergi hússins þú vilt láta hanna. Í framhaldinu sendum við þér tilboð í teiknivinnu.

03 — Tilboð

Þegar hönnun og teiknivinnu er lokið og efnisval liggur fyrir þá gerum við tilboð í verkefnið og leggjum fram áætlaðan afhendingatíma. Almennur afhendingatími er 3-5 mánuðir.

04 — Smíði & Framkvæmd

Þegar verkefnið hefur verið staðfest með greiðslu staðfestingagjalds er næsta skref að senda mælingamann á staðinn til að taka nákvæmar mælingar. Eftir þetta getum við gefið nákvæman afhendingatíma á verkefninu.

05 — Afhending

Verkefnið er afhent á vörulager Formus. Ef þess er óskað höfum við milligöngu um flutning og burð vörunnar á verkstað. Greitt er beint til flutningsaðila fyrir þá þjónustu.

06 - Uppsetning

Við vinnum með nokkrum reyndum samstarfsaðilum sem sjá um uppsetningu á innréttingunum okkar. Viðskiptavinurinn leitar sjálfur tilboða í uppsetningu og greiðir beint til viðkomandi aðila fyrir þá þjónustu.

Minimalist interior with a sleek black table, a large textured stone bowl, a small metallic bowl, and modern architectural sculptures against a plain white wall.