Skilmálar
-
1.1 Þessir viðskiptaskilmálar gilda um alla sölu á vörum og þjónustu Formus ehf., Hlíðasmára 3, 201 Kópavogi, kt. 560522-0290 (hér eftir nefndur seljandi), til kaupanda, hvort sem kaupandi er einstaklingur eða lögaðili.
1.2 Kaupandi er sá aðili sem skráður er sem kaupandi á reikningi seljanda.
1.3 Skilmálar þessir teljast samþykktir þegar kaupandi greiðir staðfestingargjald.
-
2.1 Ekki er skilaréttur á vörum sem eru sérpantaðar eða sérsmíðaðar.
2.2 Heimilt er að skila lagervörum innan 15 daga frá útgáfu reiknings ef vörur eru ónotaðar og í upprunalegum umbúðum.
-
3.1 Tilboð felur í sér boð seljanda um viðskipti þar sem tilgreind eru m.a. vara, magn, verð og aðrar forsendur. Tilboð gilda í tvær vikur frá útgáfudegi nema annað sé sérstaklega tekið fram í tilboðinu.
3.2 Pöntun telst staðfest þegar kaupandi hefur greitt staðfestingargjald.
3.3 Þar til staðfestingargjald hefur verið greitt ber seljandi enga skuldbindingu varðandi afhendingartíma eða önnur atriði sem fram koma í tilboði.
3.4 Óski kaupandi eftir breytingum á tilboði áður en pöntun hefur verið staðfest verður tilboðið endurreiknað og sent kaupanda til samþykktar.
3.5 Eftir að framleiðsluteikningar hafa verið samþykktar eru breytingar á staðfestri pöntun óheimilar.
3.6 Þegar verkefni felur í sér sérpantaðar viðartegundir, svo sem hnotu, reykta eik, ask eða tekk, er ekki unnt að gera breytingar á pöntun eftir staðfestingu vegna lengri afhendingartíma efniviðar.
3.7 Seljandi áskilur sér rétt til að falla frá pöntun reynist vara ófáanleg, uppseld, skemmd eða ekki unnt að framleiða hana. Í slíkum tilvikum verður staðfestingargjald endurgreitt að fullu.
3.8 Óski kaupandi eftir að hætta við pöntun af ástæðum sem ekki eru á ábyrgð seljanda, á tímabilinu frá staðfestingu pöntunar þar til framleiðsluteikningar hafa verið samþykktar, endurgreiðir seljandi staðfestingargjaldið að frádregnum 20% vegna kostnaðar við undirbúningsvinnu.
3.9 Mælingar á verkstað eru nauðsynlegar við alla sérsmíði innréttinga og borðplötum úr steini. Kostnaður vegna mælinga er ekki innifalinn í verði vörunnar.
3.10 Sé verkstaður ekki tilbúinn til mælinga að mati seljanda er honum heimilt að fresta mælingum án ábyrgðar á þeim töfum sem slíkt kann að valda á framleiðslu eða afhendingu vörunnar.
3.11 Endanlegt efnisval og tækjalisti skulu liggja fyrir innan tveggja vikna frá staðfestingu verkefnis. Dragist það getur það valdið seinkun á framleiðslu og afhendingu án ábyrgðar seljanda.
-
4.1 Undir starfsemi seljanda fellur einnig rekstur hönnunarstofu. Seljandi gerir fast verðtilboð í slíka vinnu og er í tilboðinu skilgreining á því hvað felst í slíkri vinnu.
4.2 Vinna sem unnin er umfram það sem tilboð nær til er innheimt á tímagjaldi seljanda hverju sinni.
-
5.1 Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti og miðast við forsendur tilboðs.
5.2 Greiðslufyrirkomulag er með þeim hætti að 50% af heildarverði greiðist sem staðfestingargjald við pöntun og eftirstöðvar, 50% fyrir afhendingu vörunnar.
5.3 Verð breytast ekki eftir staðfestingu pöntunar nema rangar upplýsingar hafi legið til grundvallar, innsláttarvilla hafi átt sér stað eða verulegur dráttur verði á verkefni af ástæðum sem seljanda eru óviðkomandi. Verulegur dráttur samkvæmt ákvæði þessu telst að lágmarki þrír mánuðir. Í þeim tilfellum er seljanda heimilt að endurreikna tilboðið.
-
6.1 Afhending fer fram frá vörulager seljanda til kaupanda eða flutningsaðila á hans vegum.
6.2 Almennur afhendingartími er 3-5 mánuðir frá staðfestingu pöntunar, nema annað sé sérstaklega tekið fram í tilboði, með þeim fyrirvörum sem leiða af skilmálum þessum, m.a. vegna mælinga, breytinga eða tafa á flutningi.
6.3 Ábyrgð á vörunni flyst til kaupanda við afhendingu.
6.4 Sé vara ekki sótt innan þriggja vikna frá því að kaupanda hefur verið tilkynnt að hún sé tilbúin til afhendingar er seljanda heimilt að innheimta geymslugjald. Geymslugjald nemur 20.000 kr. á dag ef umfang vörunnar er meira en þrjú Euro-bretti, en 10.000 kr. á dag ef umfang hennar er þrjú Euro-bretti eða minna. Seljandi skal tilkynna kaupanda fyrirfram áður en gjaldtaka hefst.
6.5 Greiði kaupandi ekki afhendingargjald á réttum tíma og geri þar með afhendingu ómögulega, er seljanda heimilt að leggja 20% álag á afhendingargjaldið auk þess að innheimta dráttarvexti og geymslugjald.
6.6 Kaupandi ber allan kostnað af flutningi frá lager seljanda, þar með talið vegna hlutaafhendinga eða aukapantana. Kaupandi ber einnig kostnað af förgun flutningsumbúða og annarra umbúða.
-
7.1 Kaupandi skal tilkynna seljanda um galla eða vöntun án ástæðulauss dráttar eftir að galli kemur í ljós. Seljandi metur tilkynningu kaupanda.
7.2 Ábyrgð seljanda gildir í 12 mánuði frá afhendingu nema íslensk lög mæli fyrir um lengri ábyrgð, svo sem samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003 þegar kaupandi er einstaklingur, lögum um lausafjárkaup nr. 50/2000 þegar kaupandi er lögaðili eða lögum um þjónustukaup nr. 42/2000 þegar um þjónustu er að ræða.
7.3 Náttúrulegur breytileiki í lit, áferð, mynstri og öðrum einkennum náttúrulegra efna telst ekki galli. Þá telst lita- og áferðarmunur milli sýnishorna í sýningarsal seljanda og afhentra innréttinga, parkets eða náttúrusteins ekki til galla.
7.4 Ábyrgð fellur niður hafi kaupandi sjálfur framkvæmt viðgerðir eða breytingar á vöru án skriflegs samþykkis seljanda, ef galli má rekja til rangrar meðferðar eða notkunar, ef viðgerðir hafa verið framkvæmdar af óviðkomandi aðilum án samþykkis seljanda, eða ef leiðbeiningum seljanda hefur ekki verið fylgt.
7.5 Eðlilegt slit, bilanir eða skemmdir sem rekja má til rangrar eða ófullnægjandi meðferðar, sem og notkun vöru í öðrum tilgangi en henni er ætlað, teljast ekki gallar í skilningi þessara skilmála.
7.6 Kaupanda er óheimilt að gera kröfu á hendur seljanda um kostnaðarþátttöku vegna meints galla nema fyrir liggi skriflegt samþykki seljanda áður en vinna hefst, þar sem fram kemur fyrirfram samþykkt fjárhæð.
7.7 Seljandi á ávallt rétt á að skoða hið selda og meta hvort um galla sé að ræða áður en úrbætur eru ákveðnar. Seljandi á rétt á að nýta sér úrbótarétt sinn.
7.8 Sé parket lagt yfir gólfhita skal yfirborðshiti ekki fara yfir 27°C. Skemmdir sem rekja má til of hás gólfhita falla utan ábyrgðar seljanda.
7.9 Viður er viðkvæmur fyrir breytingum á hita og rakastigi. Æskilegt er að hitastig sé á bilinu 18–22°C og rakastig 40–60%. Of þurrt loft getur valdið sprungum í viði en of mikill raki þenslu. Þetta á bæði við um parket og innréttingar. Skemmdir sem rekja má til slíkra aðstæðna falla utan ábyrgðar seljanda.
-
8.1 Seljandi annast ekki uppsetningu á eigin ábyrgð eða reikning. Seljandi getur þó bent kaupanda á sjálfstæða verktaka til að annast uppsetningu. Slíkir verktakar bera sjálfir fulla ábyrgð á framkvæmd og gæðum vinnu sinnar. Seljandi aðstoðar kaupanda við gæðaeftirlit til að tryggja góða útkomu.
-
9.1 Seljandi meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við gildandi persónuverndarlög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
-
10.1 Vara er eign seljanda þar til kaupverð hefur verið greitt að fullu.
-
11.1 Seljandi ber ekki ábyrgð á vanefndum eða töfum sem rekja má til óviðráðanlegra atvika sem seljandi hefur ekki stjórn á. Til slíkra atvika teljast m.a. náttúruhamfarir, verkföll, farsóttir, sóttvarnalokanir, alvarlegar truflanir á birgðakeðju eða alþjóðlegum flutningum.
-
12.1 Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum.
12.2 Ágreiningur skal borinn undir Héraðsdóm Reykjaness.