Sérsmíði

Þín hugmynd, okkar handverk – án takmarkana.
Formus mótar hugmyndina þína í sérsmíðaða innréttingu sem fellur fullkomlega í rýmið.

Modern kitchen with wooden cabinets, a marble kitchen island, a black faucet, and black bar stools, with sunlight coming through sheer curtains.

Innréttingar

Formus sérhæfir sig í hágæða sérsmíðuðum innréttingum og innihurðum sem eru án takmarkana um stærðir og efnisval. Við vinnum eftir teikningum arkitekta eða okkar eigin hönnuða og hægt er að velja úr öllum helstu efnum sem notuð eru í innréttingasmíði. Fjölbreyttar viðartegundir og sérblandaðir viðarlitir í boði, auk þess sem við sprautulökkum í hvaða NCS-lit sem er.

Innréttingar frá Formus eru framleiddar á handverksverkstæðum okkar í Evrópu. Við notum eingöngu fyrsta flokks skúffubrautir og hæglokanir frá Blum og Hettich.

Eldhús

Baðherbergi

Fataskápar / Fataherbergi

Stofur & borðstofur

Þvottahús

Interior of a modern kitchen featuring a marble island with a central sink, dark wooden cabinets, built-in appliances, and a sleek minimalist design.

Innihurðir, rennihurðir, klæðningar

Við sérsmíðum allar gerðir innihurða; innihurðir án gerefta, rennihurðir, hurðir sem falla inn í vegg, ásamt lofta- og veggjaklæðningum. Allt er hægt að framleiða í sama útliti og innréttingarnar til að skapa samræmdan og fallegan heildarsvip.

Modern interior hallway with dark wood flooring, black metal and glass sliding closets on the left, and a textured glass door at the end of the hallway.

Stál-glerhurðir

Formus sérsmíðar allar gerðir stál- og glerhurða, hvort sem um er að ræða rennihurðir eða hefðbundnar innihurðir, allt í samræmi við hönnun hvers og eins. Formus sérsmíðar einnig stál og glerhillur. Í boði er fjölbreytt úrval glertegunda og er stálið sprautað í þeim RAL-lit sem óskað er eftir.

Modern bathroom vanity with dual copper sinks, a marble countertop, large mirror, wall-mounted faucets, and wooden cabinetry with a textured finish, complemented by dark wooden flooring.

Speglar og speglaskápar

Formus sérsmíðar allar gerðir spegla- og speglaskápa, allt í samræmi við hönnun hvers og eins. Í boði eru rammar úr áli, stáli eða við, í fjölmörgum litatónum. Glerin fást einnig í fjölbreyttum litum og áferðum. Þá býðst einnig mikið úrval af lýsingarlausnum, þar sem hægt er að velja á milli mismunandi útfærslna - hvort sem um er að ræða lýsingu að framan, undir eða baklýsingu.