Verkefnin
Verkefni H
Verkefni H er vandað og glæsilegt heimili þar sem sérsmíði, ríkulegt efnisval og fagurfræði mynda samfellda heild. Útkoman er fáguð og tímalaus þar sem gæði og smáatriði njóta sín til fulls.
Rúmgóð eyja úr hnotu dregur augað að sér og myndar miðpunkt eldhússins. Fræstar línur í bakvegg tækjaskápsins skapa dýpt og fallegt samspil við marmarann.
Sérsmíðaður rúmgafl úr hnotu er miðpunktur rýmisins og skilur af svefn- og baðsvæði. Mjúkar, bogadregnar línur undirstrika einstaka handsmíði og skapa flæði sem gefur rýminu hlýtt og lifandi yfirbragð.
Snyrtiaðstaðan er miðpunktur rýmisins og byggð inn í rúmgaflinn í svefnherberginu. Fataherbergið er útbúið sniðugum, sérsmíðuðum skápalausnum með fallegri LED-lýsingu sem gefur mjúka birtu, en útkoman er dramatísk og fáguð.
Vegghengdur skápur og glerskápur passa fullkomlega inn í borðstofurýmið. Engar sýnilegar lamir trufla línurnar á glerskápnum; þær eru faldnar inn í prófílnum, sem undirstrikar kostgæfni í efnisvali og smáatriðum.
Verkefni S
Verkefni S er hlýlegt og fallega útfært sumarhús þar sem sérsmíðaðar innréttingar setja sterkan svip á rýmið. Náttúrulegt efnisval, brúnbæsuð eik og vandlega úthugsuð smáatriði skapa notalega og tímalausa heild þar sem hlýleiki, gæði og fagurfræði njóta sín í fallegu umhverfi.
Borðstofuborðið er sérsmíðað úr vandaðri eik með svörtum möttum stálfótum sem fellur fullkomlega inn í rýmið og skapar fágað en tímalaust yfirbragð. Hægt er að velja um fjölbreytta liti á bæði borðplötu og fótum til að samræmast hverju rými og stíl fyrir sig.
Framhliðarnar eru úr brúnbæsaðri spónlagðri eik með fíngerðum römmum úr gegnheilli eik sem skapa fágað samspil klassískrar hönnunar og nútímalegs yfirbragðs.
Hlýlegt baðherbergi með innangengt í lítið þvottarými þar sem smáatriðin skapa heildina. Speglaskápur með eikarramma samræmist römmum á framhliðum innréttingarinnar og rennihurð úr eik tengir rýmin saman á fallegan hátt.
Tækjaskápur með vasa hurðum undirstrikar bæði notagildi og praktík. Hér sameinast fagurfræði og virkni í vel útfærðu eldhúsi þar sem allt er til alls.