Innréttingar –
Sérsmíði – Hönnun
Hjá Formus snýst allt um sérsmíði. Hvert verkefni er einstakt og fyrir okkur er ekkert verkefni of flókið. Formus sérsmíðar innréttingar, innihurðir, stálhurðir og húsgögn eftir teikningum arkitekta. Framleiðslan fer fram í handverksverkstæðum okkar í Evrópu.
Hjá Formus starfa menntaðir innanhússarkitektar sem hanna og teikna innréttingar eftir þínum óskum og veita persónulega ráðgjöf um efnis- og litaval. Við vinnum einnig náið með helstu innanhússarkitektum landsins og framleiðum innréttingar samkvæmt þeirra teikningum og hönnun.
Sagan
Stofnandi Formus er Harpa Gunnarsdóttir. Hún er menntaður sjúkraþjálfari frá Háskóla íslands og vann sem slíkur um árabil.
Harpa hefur alla tíð haft mikinn áhuga á hönnun og arkitektúr og með því að fara í gegnum þann feril sjálf að innrétta hús fyrir sína eigin fjölskyldu fékk hún hugmynd að stofnun Formus. Hún sá að það vantaði á markaðinn fyrirtæki með sérsmíðaðar innréttingar sem biði upp á heildarlausn, með þjónustu innanhússarkitekta ásamt úrvali af sérvörum.
Harpa byrjaði starfsemina í litlu sýningarými með einn starfsmann. Síðan þá hefur starfsemin aukist og þróast mikið og var Formus stofnað í núverandi mynd árið 2022 þegar fleiri hluthafar gengu til liðs við félagið. Um svipað leyti flutti starfsemin í Hlíðasmára 3, Kópavogi þar sem opnaður var glæsilegur 300m2 sýningarsalur með hönnunastúdiói og söluskrifstofu.
Í dag er Formus leiðandi á markaðnum í hönnun, framleiðslu og sölu á innréttingum og hefur komið að heildarlausnum í mörgum af glæsilegustu sérbýlum landsins.
Starfsfólk
Harpa Gunnarsdóttir
Framkvæmdastjóri (CEO) & eigandi
harpa@formus.is
Rekstrarstjóri (COO) & eigandi
B.S. & MSc. Fjármál
aron@formus.is
Aron Sigurðsson
Hönnun & teikningar
B.A. Innanhússarkitekt FHI
sandra@formus.is
Sandra Smáradóttir
Innkaupa & verkefnastjóri
MSc. Rekstarverkfræði
maria@formus.is
María Þórisdóttir
Hönnun & teikningar
MSc. Innanhússarkitekt FHI
elinthor@formus.is
Elín Thor Þorsteinsdóttir
Hönnun & teikningar
B.A. Innanhússarkitekt FHI
ingibjorg@formus.is
Ingibjörg Jósefsdóttir
Helena Jóhannsdóttir
Hönnun & teikningar
B.A. innanhússarkitektúr
helena@formus.is
Hönnun & teikningar
B.A. Innanhússarkitekt FHI
eddabjorg@formus.is